Search

Skilmálar vefsíðunnar

Þegar þú heimsækir heimasíðu félagsins, vaka.is, eru notaðar vefkökur til þess að aðgreina þig frá öðrum notendum á vefsíðu félagsins. Vefkökur eru litlar textaskrár sem vafrinn þinn vistar á tölvunni þinni sé hann stilltur til að samþykkja notkun á vefkökum. Vefkökurnar gera Vöku kleift að muna ákveðnar stillingar hjá þér til að bæta notendaupplifun og afla tölfræðiupplýsinga um notkun á vefsíðunni.

I. Vefkökur

Ef þú skilur eftir athugasemd á síðunni getur þú valið að vista nafn, netfang og vefsvæði í svokölluðum vefkökum. Þetta er til þæginda fyrir þig svo þú þurfir ekki að skrifa þessar upplýsingar aftur þegar þú skilur eftir aðrar athugasemdir á síðunni. Þessar vefkökur eru vistaðar og geymdar í 12 mánuði.
Ef þú ert með aðgang og skráir þig inn á síðuna þá er sett upp tímabundin vefkaka til að athuga hvort vafrinn þinn samþykki vefkökur. Þessi vefkaka inniheldur engar persónuupplýsingar og er fleygt þegar þú lokar vafranum þínum.
Þegar þú skráir þig inn eru einnig settar upp nokkrar vefkökur til að vista innskráningarupplýsingar þínar og valmyndir skjásins. Slíkar innskráningar-vefkökur endast í 48 klukkustundir og skjá-vefkökur endast í 12 mánuði. Ef þú velur „Muna eftir mér“ er innskráningin virk í tvær vikur. Þegar þú skráir þig út af aðganginum þá eru innskráningar-vefkökur fjarlægðar.
Ef þú birtir eða breytir grein, er vistuð viðbótarkaka í vafranum. Sú vefkaka inniheldur engar persónulegar upplýsingar heldur aðeins auðkenni greinarinnar sem þú breyttir og rennur út að 24 tímum liðnum.

II. Athugasemdir

Þegar þú skilur eftir athugasemd á síðunni þá safnar Vaka og geymir þau gögn sem slegin eru inn í athugasemdaformið. Sama á við um IP tölu og upplýsingar um gerð vafra í þeim tilgangi að aðstoða við greiningu á ruslpóst sendingum.
Eftir samþykki athugasemdar þinnar þá er prófílmynd þín sýnileg almenningi við hlið ummælanna. Ópersónugreinanlegur strengur, sem búinn er til úr netfangi þínu, (einnig kallaður hash) er sendur til Gravatar þjónustunnar í þeim tilgangi að kanna hvort þú notir þjónustu þeirra. Persónuverndarstefnu Gravatar þjónustunnar er að finna hér: https://automattic.com/privacy/.

III. Skrár

Þú berð alltaf ábyrgð á myndum og öðrum skrám sem þú sendir inn á vefsíðu félagsins. Þegar þú deilir gögnum með þeim hætti ættir þú að forðast að hlaða upp myndum með innbyggðum staðsetningargögnum (EXIF GPS) þar sem gestir á síðunni geta þá hlaðið niður þeim staðsetningargögnin úr myndum. Sama á við um aðrar skrár, að athuga að lýsigögn (e. Metadata) sem tengd eru skrám séu afmáð eða fjarlægð.

IV. Skilaboð

Ef þú sendir inn skilaboð í gegn um skilaboða- og póstform síðunnar þá safnar Vaka og geymir þau gögn sem þar eru slegin inn. Sama á við um IP tölu sendanda og upplýsingar um gerð vafra í þeim tilgangi að aðstoða við greiningu á ruslpóst sendingum.

V. Innsett efni frá öðrum vefsíðum

Greinar á þessari síðu geta innihaldið innsett efni frá öðrum vefsíðum (t.d. myndskeið, myndir, greinar o.s.frv.). Innsett efni frá öðrum vefsíðum hegðar sér með sama hætti og ef þú heimsækir þá tilteknu síðu.
Þessar vefsíður geta safnað gögnum um þig, notað vefkökur, innsett viðbótar eftirfylgni þriðja aðila og fylgst með samskiptum þínum við það innsetta efni ef þú ert með aðgang og innskráður á þær vefsíður, til að mynda YouTube, Google, Facebook og Instagram.

VI. Með hverjum er gögnunum deilt

Í þágu samræmdrar framsetningar leturs í texta síðunnar, eru notaðar leturgerðir frá Google. Þegar þú opnar síðu á vefsvæði Vöku, færir vafrinn þinn nauðsynlegt vefletur inn í skyndiminnið í þeim tilgangi að sýna texta og leturgerðir rétt. Svo þetta sé hægt þá verður vafrinn þinn að koma á beinni tengingu við netþjóna Google og þar með verður Google meðvitað um að vefsíðan hafi verið skoðuð með þinni IP-tölu. Notkun Google leturgerða er gerð í þágu samræmds og aðlaðandi útlits á síðum félagsins. Ef vafrinn þinn styður ekki leturgerðir Google, er venjulegt letur af tölvunni þinni notað. Frekari upplýsingar um meðhöndlun notendagagna Google er að finna á https://developers.google.com/fonts/faq og í persónuverndarstefnu Google á https://www.google.com/policies/privacy/.

VII. Hvert eru gögn send

Umfram það sem að framan er greint, þá eru athugasemdir sem notandi skrifar, eftir atvikum sendar á sjálfvirkar ruslpósts síur til samþykkis og greiningar.

VIII. Hve lengi eru gögnin geymd

Ef þú skilur eftir athugasemd þá er hún, sem og lýsigögn hennar, þ.m.t. upplýsingar um höfund, vistuð á líftíma síðunnar eða þar til þeim upplýsingum er eytt handvirkt. Þetta er gert svo hægt sé að þekkja og samþykkja sjálfvirkt síðar inn settar athugasemdir frá þér í stað þess að geyma þær í biðröð til handvirkrar samþykktar kerfisstjóra.
Fyrir þá notendur sem skrá sig á notandasvæði heimasíðu Vöku, eru geymdar persónulegar upplýsingar sem notandi veitir í notandasniðinu, svo sem nafn og netfang. Allir notendur geta hvenær sem er séð, breytt eða eytt persónulegum upplýsingum sínum (nema þeir geta ekki breytt notandanafninu sínu). Stjórnendur vefsvæðis getur einnig séð og breytt þessum upplýsingum, nema lykilorði sem aðeins er sýnilegt viðkomandi notanda. Kerfisstjóri getur þó breytt lykilorði notanda.

IX. Hvaða réttindi hefur þú yfir gögnunum

Ef þú ert með notendareikning á þessari síðu eða hefur skilið eftir athugasemdir geturðu beðið um að fá skrá með persónuupplýsingum sem geymd er um þig, þ.m.t. allar upplýsingar sem þú hefur veitt á síðunni. Þú getur einnig óskað eftir því að öllum persónugreinanlegum gögnum sem vistuð eru um þig á síðunni sé eytt. Þetta felur þó ekki í sér upplýsingar sem félaginu er eftir atvikum skylt að geyma, enda kveði lög eða reglugerðir svo um.

X. Samþykki þitt á þessum skilmálum

Með notkun á þessari síðu, staðfestir þú og samþykkir þessa skilmála. Ef þú ert mótfallin/n framangreindum skilmálum, skaltu ekki nota síðuna vaka.is eða skrá þig sem notanda síðunnar.

 

Samþykkt þann 17. janúar 2020